Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 674. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1083  —  674. mál.




Fyrirspurn



til mennta- og menningarmálaráðherra um samskipti RÚV við Evrópusambandið.

Frá Ásmundi Einari Daðasyni.


     1.      Hafa stjórn RÚV, útvarpsstjóri, dagskrárstjóri og fréttastjóri mótað reglur um samskipti RÚV við Evrópusambandið og stofnanir á þess vegum (þar á meðal Evrópustofu) vegna aðildarviðræðna Íslands? Ef svo er, hverjar eru þær reglur?
     2.      Hafa starfsmenn RÚV þegið kynnisferðir kostaðar af Evrópusambandinu eða stofnana á þess vegum (þar á meðal Evrópustofu)? Ef svo er, hversu margar ferðir er um að ræða og hvaða starfsmenn hafa þegið slíkar ferðir?
     3.      Hefur RÚV tekið við fjármunum frá Evrópusambandinu eða stofnunum þess (þar á meðal Evrópustofu) í þeim tilgangi að kynna starfsemi sambandsins?


Skriflegt svar óskast.